Míkadodrottningin
26.07.2006 21:27:19 / olla

Flutt

jamm, ákvað að flytja mig um set á http://www.123.is/olla/Setti þar inn myndir frá reunioninu sem var í júní og að sjálfsögðu linka á allar gömlu myndasíðurnar.
A nýju myndasíðunni er hægt að setja komment undir myndirnar, gaman ef fólk er duglegt að gera það.



» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 12:10:14 / olla

Kominn tími á blogg

já býst við því að það sé kominn tími, ætli næsta færsla verði samt nokkuð fyrr en í Alabama :) Ætlaði bara að kasta kveðju á mína dyggu lesendur rétt áður en ég held út í sólina. Það er gott að vinna í Sjóvá því í dag fær helmingur starfsfólksins frí frá hádegi v. veðurs og hinn helmingurinn frí næsta sólardag. Sem betur fer er ég í þeim helming sem hættir í dag. Þangað til næst.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 12:58:59 / olla

Ísland

Já ég er sem sagt komin heim. Lenti á klakann fyrir rúmri viku og byrjaði að vinna núna síðasta miðvikudag í Sjóvá - nema hvað :) Ferðin heim gekk nú svona og svona og þá sérstaklega á flugvellinum í Montgomery þar sem ég og Ragnheiður vorum með soldið mikinn farangur og Ranni fann ekki flugmiðann. Ranni flaug einn með Delta en við hin misstum næstum af okkar flugi því við vorum að hjálpa honum. Tíu mínútur í flugtak og við öll eftir að fara í gegnum öryggishliðin. Byrjað að kalla okkur upp: "We are closing the gate in 1 minute, passenger with Icelandair" !!! Ó MÆ GOD, ég hef sjaldan verið jafn stressuð og missti út úr mér "we´re coming" yfir alla flugstöðina sem er ekki mikið stærri en Reykjavíkurflugvöllur. Siggi komst fyrstur inní vél og þar fékk hann að heyra "hurry up, the others won´t make it". Þetta hafðist nú allt að lokuð og upp í vél komumst við í brjálaðri rigningu og þrumuveðri... Strákarnir yfirgáfu okkur svo í Baltimore og plebbuðus í Saga Lounge þar sem er sjálfsafgreiðsla á barnum... frekar næs. Lentum svo í Keflavík morguninn eftir og þá var gott að skríða uppí rúm og sofna. Fyrsta Þróttaraæfingin var svo seinni partinn og það var bara fínt. Líst bara vel á þetta allt saman og verður alltaf skemmtilegra og skemmtilegra með hverri æfingunni. Alltaf kostur að þekkja nöfnin á samherjunum og það er allt að koma. Fyrsti leikur á mánudaginn og því ekkert Eurovision sukk um helgina. Verður bara tekið á því á miðvikudaginn í staðinn :) Er farin að fara mikið á hestbak núna. Eigum tvo hesta, þá Flóka og Eldi (hann heitir Eldir) og þetta gengur bara vel. Er svo að fara á golfnámskeið í næstu viku þannig að ég er komin með fullt af áhugsamálum þegar fótboltinn klárast. Veit nú ekki alveg hvort ég verð eitthvað dugleg að skrifa í sumar, efast um það en samt er aldrei að vita. Hendi svo inn einhverjum myndum þegar elsku tölvan mín læknast, ef hún gerir það þá einhvern tímann... Annars bara gott að vera komin heim í sumar og gaman að hitta alla og hlakka til að hitta þá sem ég á ennþá eftir að hitta. Olla

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 14:35:14 / olla

Island

Eitt prof eftir

reyndar 7 og halfur klukkutimi i thad. Var ad koma ur einu profi og hyggst vera herna i skolanum fram ad thvi sidasta. Erfidasta, jaeks...

allavega, verdur ljuft ad koma heim i kvold, aetlum ad grilla og svona, sidasta kvoldid og svo fljugum vid oll saman fra Montgomery i fyrramalid. Forum oll i sama flugi, eg, Tinna, Ragnheidur, Halli og Siggi. Ranni greyid fer einn i einhverju odru flugi. Fer samt med okkur til Islands thar sem their strakarnir verda ad plebbast a Saga Class... Erum osjaldan bunar ad heyra setninguna "ef thid thurfid eitthvad ad tala vid okkur i Baltimore, tha verdum vide i Saga Lounge"....

Allavega, lendi a klakanum goda fimmtudagsmorguninn :):):)

hlakka til ad sja  ykkur oll

Olla

ps. Birta, haett thu ad areita mig, myndi eg frekar segja. ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 04:04:22 / olla

eldamennska

Held að ég hafi slegið persónulegt met. Reyndar held ég það ekki neitt, veit að ég gerði það. Eldaði mat 3 daga í röð!!! Steikti fisk í raspi á mánudaginn, gerði pastarétt í gær og áðan eldaði ég kjúklingarétt... Mmmmm, er virkilega ánægð með árangurinn og kom sjálfri mér á óvart og sannaði að ég er ekki handónýt í eldhúsinu.

Annars er allt gott að frétta, eftir nákvæmlega 2 vikur verð ég fljúgandi yfir Atlantshafið á leiðinni heim. Verð líklegast slefandi af svefntöflunum sem ég ætla að taka til að stytta stundirnar. Nóg að gera framundan, lokaprófin að hellast yfir. Fór aftur í golf síðasta föstudag og var mun betri en í fyrsta skiptið. Er svo að fara aftur núna á laugardaginn og svo er svaka partý um kvöldið. Byrjar á barnaafmæli sem á víst að breytast í partý. Svo á Su afmæli (hún er í liðinu) og ætli maður endi þetta svo ekki á Woodmeres. Eini almennilegi staðurinn hérna. Síðasta djammið áður en maður heldur á klakann.

Á laugardaginn síðasta skelltum við okkur til Auburn sem er háskólabær í 40 mín fjarlægð. Mjög góð tilbreyting frá Montgomery. Við skemmtum okkur bara mjög vel og sumir voru hressari en aðrir... hehe...

Annars þarf maður bara bráðum að fara að pakka niður. Sko alls ekkert djók að komast heim með dótið sitt, sem betur fer er maður bara með sitt eigið dót núna :)

Þangað til seinna elskurnar, bættum inn myndum frá helginni í nýja albúmið.
Olla


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 04:49:14 / olla

Nýjar myndir

setti inn nokkrar myndir frá vorönninni í "Ný myndasíða" og efsta albúmið...

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 03:06:31 / olla

Gleðilega páska !

Vil byrja á að óska ykkur öllum gleðilegra páska. Var að koma heim úr eðal mat, leið eins og á jólunum, íslenskur hamborgarahryggur með öllu tilheyrandi og svo líka íslenskt lamb með öllu tilheyrandi.. mmm og svo að sjálfsögðu páskaegg... Fékk málsháttinn: "margur verður að aurum api", ekki alveg sátt við það þar sem ég stefni á að verða ágætlega rík, verð greinilega að passa mig að missa ekki vitið í leiðinni :)

Annars fór dagurinn að mestu í lærdóm bara og næsta vika verður hreint helvíti þar sem maður þarf að loka sig inni fyrir kínakallinn. Próf hjá honum á fimmtudaginn... úfff hvað ég hlakka til að koma heim eftir það. Nánast allur bekkurinn að falla í þessum tíma og því spennandi að sjá hvernig þetta verður.

Sá svo í fréttunum í gær að Baldur Már og hans tengdó voru týndir á Langjökli í rúmlega hálfan sólarhring. Þakka bara fyrir að þeir hafi fundist heilir á húsi, brá ekkert smá að sjá þetta. Er líka fegin að hafa frétt þetta eftir á. Tók sig bara vel út á Rúv kallinn ;)

Annars bara allt gott að frétta, steikjandi hiti og sól flesta daga hérna núna, mjööööög næs...

Olla


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 00:10:34 / olla

Sól og hiti, komin til að vera

já held það bara að góða veðrið sé komið til að vera hérna í Montgomery. Allavega eru síðustu dagar búnir að vera mjög góðir.

Didda kom hérna föstudaginn fyrir rúmri viku og við skelltum okkur bara beint út á bakka. Fórum svo bara út að borða í tjilli með sambýlingunum. Ég þurfti svo að keppa allan laugardaginn en á sunnudeginum fórum við í Six Flags tívolíið í Atlanta. Magnaður garður og enduðum við daginn á rólunni góðu sem ég fór líka í fyrir ári síðan. Þá er maður dreginn aftur á bak rúmlega 50 metra upp í loftið (maginn snýr að jörðu) og svo er manni sleppt og svo má maður bara róla þangað til maður stoppar.. :) frekar mikið adrenalínkikk. Vorum einmitt að tala um það að maður borgar fyrir að láta hræða sig !!

Svo fór vikan bara í sólböð og notalegheit, kíkt í búðir og út að borða. Vildi helst að hún hefði ekki þurft að fara. Kom með páskaegg handa okkur.. mmmm get ekki beðið eftir morgundeginum. Okkur er svo boðið í mat til Bjarkar og Bjarka, Óla og Töshu í íslenskan hamborgarahrygg á páskadag....

Í gær fór ég mínar fyrstu 18 holur í golfi. Útkoman fór alveg eftir reynslunni en þetta kemur, klárlega eitthvað sem ég ætla að fara að stunda. Kannski maður kaupi sér bara sett áður en maður kemur heim í sumar. Maður verður að hafa eitthvað backup þegar maður hættir í fótboltanum.

Dagurinn í dag fór svo bara í létt skokk og sólbað. Er núna á leiðinni út að borða með Tinnu og Ranna og svo ætlum við í bíó að sjá Scary Movie 4.

kyss og knús
Olla


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 15:17:04 / olla

bla

jamm hef nú svo sem ekki mikið að segja en þar sem ég geri allt sem Vala segir mér að gera þá ákvað ég að henda inn okkrum línum hérna.

Síðasta helgi fór algjörlega í rólegheit, klukkunni far flýtt á laugardagsnóttina þannig að ég staðinn fyrir að leggja af stað að keppa klukkan 6 þá var hún eiginlega fimm. Kepptum tvo leiki, töpuðum fyrri leiknum 3-1 enda misstum við Elsu út af í fyrri hálfleik þar sem einhver gellan setti hnéð í gagnaugað á henni og steinrotaði hana. Þurfti að fara upp á spítala þar sem hún var ekki með fullu viti, gat ekki talað ensku og vissi ekki hvenær hún átti afmæli... Tinna neyddist til að fara í markið í seinni hálfleik og já... nei djók hún stóð sig vel þessi elska :) Fengum svo markmann lánaðan í seinni leikinn sem við unnum 3-1.

Svo er Didda mín að koma í heimsókn til mín á föstudaginn og verður í næstum viku. Hlakka svo til að fá hana hingað. Við ætlum að svala adrenalínþörfinni á sunnudaginn og fara í six flags sem er risa stórt tívolí...

en jæja, nóg í bili, þarf að fara að kíkja aðeins í bækurnar...
Olla


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 22:42:40 / olla

Bahamas

Jæja, ætlai það sé ekki kominn tími á ferðasöguna frá Bahamas. Ferðin var í alla staði mjög vel heppnuð og skemmtileg. Byrjuðum ferðina á að keyra í 10 tíma niður til Ft. Lauderdale í Flórídag. Langt en alveg skemmtilegt bara. Erum að taka síðustu beygjuna á hótelið okkar, u-beygju, og sjáum hótelið og allt... EN.... þá urðum við bensínlaus, 10 metrum frá hótelinu J Á hótelinu hittum við Þórunni og Kollu frænku Elsu, þá voru þær búnar að koma sér fyrir á þessu lúxushóteli sem við gistum á.. hmmm... Kíktum síðan bara út að borða um kvöldið og þegar við vorum að koma til baka þá vorum við öll svo æst að sýna Þórunni og Kollu hvar nákvæmlega við hefðum orðið bensínlaus að enginn tók eftir rauða ljósinu sem Ranni fór yfir á. Sem betur fer var bara einn bíll en auðvitað þurfti það að vera löggan og tók okkur... sluppum með áminningu í þetta skiptið...

 

Vorum mætt í skipið snemma á mánudaginn þar svo tóku við endalausar raðir. Gekk allt að lokum og siglingin var fín. Hægt að vera í sólbaði, góður matur og casino. Komum svo til Bahamas um miðjan dag og á hótelið okkar sem var nú ekki uppá marga fiska, allt í lagi svo sem. Fórum síðan út að borða og að djamma um kvöldið. Daginn eftir röltum við niður á aðalsvæðið og ég og Elsa freistuðumst til að láta setja fléttur í hárið á okkur. Enduðum svo á ströndinni og fórum á banana boat sem var ekkert smá gaman. Enduðum allar í sjónum hjá hákörlunum... Svo bara aftur út að borða og djamma. Á miðvikudeginum fórum við svo að snorkla. Hefði aldrei getað trúað því hvað það var gaman. Sumir voru óheppnari en aðrir í byrjun þar sem ekki var búið að blása í vestið og börðust fyrir lífi sínu í smástund hehe... Sáum fullt af fallegum fiskum og vorum ekkert smá nálægt líka. Kallinn á skipinu sagði okkur samt að halda okkur öðru megin við skipið því ef við færum hinum megin við það þeim mun dýpri sjórinn yrði og þeim mun stærri fiska færum við að sjá!!!!! Eftir þetta fórum við og leigðum okkur scooter í sólarhring og rúntuðum aðeins um eyjuna. Keyrðum bara eitthvað og sáum sjórængjaskip og svo kom í ljós að þetta er skipið sem var notað í myndinni Pirates of the Carebean, gaman að því. Um kvöldið ákváðum við bara að taka það rólega og vorum bara keyrandi niður í bæ á scooter og svona. Tinna sniðuga ákvað að ljúga því að einhverjum bandarískum gaurum að ég og Elsa værum frægir rapparar á Íslandi! Og þeir trúðu því, grátbáðu okkur um að taka eina línu en þar sem við kunnum hvorugar neitt lofuðum við að gera það bara daginn eftir... hmmm.. Daginn eftir vöknuðum við og áttuðum okkur á því að við höfðum verið rændar takk fyrir. Einhver komið inní herbergið meðan við allar sofandi og tekið 200 dollara úr veskinu hennar Ragnheiðar og ipodinn hennar og svo 70 dollara frá Þórunni. Svo var búið að hvolfa úr strandartöskunni minni og leita, bara tilviljun að peningaveskið mitt var rétt hjá hausnum á mér. Samt kannski eins gott að engin okkar vaknaði, hefði ekkert verið skemmtilegt og hver veit hvað hefði verið gert við okkur. Vitum ekkert hvernig viðkomandi komst inn, erum pínu hræddar um að hafa gleymt lyklinum í skránni en samt skrítið þar sem við vorum allar edrú. Allavega tók ræninginn lykilinn með sér þegar hann var búinn og skyldi eftir opið þannig að þegar Halli og Ranni komu heim fóru þeir inn og hirtu myndavélar og margt annað og aftur vaknaði engin af okkur. Veit ekki alveg með það! Þetta var svaka mál, löggan með byssur kom og tók skýrslur af okkur og ég veit ekki hvað og hvað. Svo meðan ég var að vakta herbergið kom einhver gaur sem var á hótelinu og bauð með að kaupa lítinn poka með hvítu dufti. Vissi ekkert hvað það var en afþakkaði bara pent. Svo kom hann aftur og spurði hvort ég væri nú alveg viss um að ég eða vinir mínir vildum ekkert kókaín! Hef örugglega haft þetta lúkk með fléttunum.. allavega þá fengum við bara nýtt herbergi og sváfum öruggar næstu nótt. Fimmtudagurinn fór bara í chill, héngum á ströndinni með kaldan og sumir fóru á JetSki. Mig langaði mest í svona parasailing. Þá fer maður í fallhlíf og svo er bátur sem dregur mann. Það verður bara að bíða betri tíma. Svo síðasta kvöldið fórum við bara út að borða og fórum á aðalsvæðið þar sem allt fólkið var. Tinna fann sér einhvern kúst og fór að sópa öllum ljótum gaurum í burt. Lenti næstum í slag reyndar en náði að redda sér út úr því. Tókum svo bara bátinn til baka á föstudeginum  og keyrðum heim á laugardaginn. Stoppuðum í Orlando í Wet´nWild sem var geggjað gaman. Fórum að sjálfsögðu í bröttustu sem var þannig að maður steig inní eitthvað box og svo ákváðu þeir bara hvenær maður dytti niður, kipptu bara gólfinu undan manni. Aðeins meira kikk í þessu en þessu “venjulega” þar sem maður sleppir sjálfur.

 

 



Vel heppnuð ferð í alla staði og erfitt að fara aftur í skólann. Helgin mun fara að mestu í rólegheit. Ætlum út að borða í kvöld allar íslensku stelpurnar og kíkja svo í afmæli hjá einni í liðinu. Tinna, Ragnheiður og Eva (vinkona Ragnheiðar og frænka Tinnu) ætla svo að skella sér í Six Flags á morgun (risa tívolí) og ég verð bara ein heima. Ætla að spara mig þangað til elskulega systir mín kemur í heimsókn til mín eftir bara tvær vikur J JJ

 

Jæja komið nóg í bili, myndir komnar inn og ég vil taka það fram að Tinna sæta skrifaði undir myndirnar, ég er ekki að taka kastið á sjálfri mér að skrifa “Olla sæta”... hehe... J

 

Þangað til næst elskurnar

Olla


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 03:58:16 / olla

Ísland

já orðið soldið langt síðan ég hef skrifað hér inn og búin að gera margt í millitíðinni. Fór til Íslands þarsíðustu helgi til að vera viðstödd jarðarför afa míns. Kom heim á laugardagsmorgni og fór á miðvikudegi aftur til USA. Náði að hitta flesta og gott að hitta familíuna mína :)

Síðustu helgi héldum við Siggi og Bethany (stelpa úr liðinu) uppá afmælið okkar og það varð bara ristastórt partý. Haldið heima hjá einni úr liðinu sem á heima í einbýlishúsi, fullt af fólki alveg og bara stuð.

svo bara búin að vera brjáluð lærivika og var í prófinu áðan, var mjög erfitt og enginn í bekknum náði að klára það var svo langt!!! EN ég er komin í springbreak og lagt verður af stað til Flórída á laugardagsmorgunn og siglt frá Fort Lauderdale til Bahamas á mánudaginn í fimm daga.. mmm verður næs :)

Reikna ekki með miklu bloggi á næstunni, þannig að þangað til næst...

Olla


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 20:00:05 / olla

sól sól

jess... komst loksins út áðan í smá sólbað og sat úti í tæpan klukkutíma, yndislegt. Ekki seinna að vænta að fara aðeins að "worka í taninu" 8)

Tveir tímar eftir í dag af skólanum og svo komin helgi, það er líka yndislegt :)

Magga og Úlli ætla að koma hingað til Montgomery og það verður eitthvað djammað, tími til kominn eftir djammlausa síðustu helgi, þetta gengur bara ekki.

Svo er ég líka aftur orðin Þróttari. Fékk leikheimild með þeim 8. febrúar. Verður gaman að koma heim í vor og fara að spila með þeim.

hef ekkert meira að segja í bili, endilega segiði mér eitthvað skemmtilegt sem er að gerast heima á klakanum...


» 22 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 19:59:40 / olla

hefði átt að fara í rauða búninginn minn

jamm þetta heyrði ég í klefanum í morgun þegar ég var að blása hárið. Þar var ein hjúkkan (vinnur allavega á spítala, ekki alveg viss um að það hafi verið hjúkka) að klæða sig og segir allt í einu við aðra að hún hefði nú endilega átt að vera í rauða gallanum sínum í tilefni dagsins, nú fengi hún enga rós fyrst hún fór í bláa! og já fyrir þá sem ekki kveikja er Valentínusardagurinn í dag. Þessi dagur er bara stórhátiíð hér í landi, allar búðir fullar af rauðum hjartablöðrum, böngsum, súkkulaði og ég veit ekki hvað og hvað. Hvar sem maður keyrir er fólk með fram götunni að reyna að þröngva þessu upp á mann og allir auglýsingatímar eru fullir af skartgripaauglýsingunum og þeim skilaboðum að ef þú kaupir ekkert ertu ömurleg/ur kærasta/i :)

annað dæmi um þennan dag er það að Ragnheiður átti að fara í próf á morgun. Nei nei, í gær kemur kennarinn hennar í tíma og frestar prófinu þangað til í næstu viku til að allir gætu nú örugglega notið þess að vera til á Valentínusardaginn...

Fór að hugsa um daginn um það hvernig maður aðlagst hérna. Fyrst þegar ég kom hingað út fóru Siggi og Hilmar með mig á ihop (international house of pancakes). Ég var nú ekkert alltof hrifin af þessum stað þar sem allir hökkuðu í sig þykkum pönnukökum með líter af sírópi ofan á. Þetta er svona morgunmatarstaður aðallega, hægt að fá ommelettur, egg og beikon og fleira. Nú í dag, veit ég fátt betra en að fara þangað, fá mér egg, beikon og hash browns og pönnukökur í eftirrétt (sérstaklega eftir djammið :)) Veit samt ekki hvort þessi aðlögun sé til hins góða, hmmm...

jæja enda þetta bara á því að óska ykkur ölluð gleðilegs Valentínusardags.
kyss kyss


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 08:03:20 / olla

myndir myndir

bara láta vita að það eru komnar inn myndir frá New York.

var annars bara að koma heim frá því að passa. Gerði greinilega rosa mikið gagn þar sem Tinnu tókst ekki að vekja mig þegar foreldrarnir bönkuðu, hún hélt á barninu sem var nývaknað og endaði með því að hún þurfti að opna fyrir þeim...


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 18:59:20 / olla

Ferðasagan

Erum komnar aftur heim til Bama eftir frábæra og vel heppnaða ferð norður í land :)

Fórum á fimmtudaginn og flugum til Providence. Lentum í seinkun í Atlanta og vorum því þar í fjóra tíma eða svo. Komum loksins þar sem Þórunn og Dóra María biðu eftir okkur og þær þurftu svo greyin að mæta á lyftingaræfingu 8 um morguninn... Við Tinna fengum bílinn hennar Þórunnar lánaðan og keyrðum í mallið í Providence. Ótrúlegt hvað allt er eitthvað eins í Bandaríkjunum. Fannst ekkert eins og maður væri að koma þarna í fyrsta skiptið. Ef þetta eru ekki stórborgir eins og Boston og New York þá er þetta allt voðalega svipað. Skyndibitastaðir á hverju horni og allt svona pínu sveitó (ekkert að því). Allavega þá fundum við mallið enda Þórunn búin að prenta út hinar ýmsu leiðbeiningar (förum ekkert út í það hversu góðar þær voru sumar :)). Sóttum síðan Þórunni og Dóru í skólann og fórum heim. Kíktum svo í eitthvað partý um kvöldið og eitt partýið sem við fórum í var svona ekta eins og í bíómyndunum. Troðfullt einbýlishús, bjórkútar og ofurölvun út um allt. Fórum samt bara snemma heim því við þurftum að vakna ferskar til að keyra til NY.

Lögðum af stað um níu leytið og vorum komnar á hótelið hálf tvö eftir eitt matarstopp og eitt stopp til að rata inní Manhattan. Þegar við komum þangað var pínu stressandi að keyra þar sem allir liggja á flautunum þarna og keyra bara þar sem þeir komast, ekkert verið að stressa sig á akreinarmerkingum eða neitt. Tékkuðum okkur inná hótelið og tókum síðan lestina niður á Times Square. Veðrið var ekki alveg að leika við okkur, rigning og kalt þannig að þessi dagur var notaður meira til að kíkja í búðargluggana, bara skoða í gluggana ekkert meir 8|
Hittum Lilju KR inní einni búðinni og hún benti okkur á Empire State sem við hefðum alveg pottþétt labbað framhjá annars því það var svo mikil þoka að það sást ekki í toppinn. Þrátt fyrir skilti í anddyrinu sem sýndi: "visibility: 0 miles" þá var samt 10 mínútna bið til að komast upp. Spes.
Seinna um kvöldið fórum við út að borða stelpurnar og Lilja, Bjarney, Sigurrós og kærastinn hennar líka. Lilja og Sigurrós eru í skóla í Bridgeport og Bjarney býr á Manhattan og er í skóla þar. Fórum á Planet Hollywood þar sem ég mátaði mínar hendur í gifsmót af ástinni minni stóru. Þá erum við að sjálfsögðu að tala um Bruce Willis :) Kíktum síðan á Kro-bar sem er risa stór staður og það var bara mjög gaman.

Næsta dag byrjuðum við daginn á að rölta aðeins í Central Park og tókum svo leigubíl niður í ChinaTown þar sem verið var að fagna nýju ári, ár hundsins að byrja J Þar er líka Canal Street þar sem maður getur keypt fullt af töskum og það var hver einasti maður sem réðst að manni og bauð manni að skoða eftirlíkingar. Fórum síðan og skoðuðum frelsisstyttuna og röltum þaðan uppá Ground Zero. Þar var búið að hengja einn blómvönd á girðinguna til minningar um einn þeirra sem dó því hann átti afmæli daginn áður. Kort frá fjölskyldunni… svo var einn gamall maður sem sat þarna og spilaði á þverflautu og kom manni í sorgarstemningu… liggur við að við höfum allar labbað burtu með tárin í augunum… Enduðum daginn með því að borða á Hard Rock og keyrðum svo “heim” til Rhode Island. 

 

 



Á mánudeginum skoðuðum við aðeins íþróttaaðstöðuna hjá stelpunum, verð að segja að þetta er miklu stærra og flottara en hérna í Alabama… Komum svo til baka á miðnætti með eina af tveimur töskum. Þá var ákveðið að skilja svona 3 töskur eftir í Atlanta til að koma meira bensíni á vélina og auðvitað var taskan okkar skilin eftir…

Annars bara róleg helgi framundan, held ég allavega. Passa á föstudaginn og svo veit maður ekki. O.C í kvöld, svaka spennandi J

Jæja nóg í bili.


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14